19maí

Hvađ helduru ađ lögreglan sé...

...að skipta sér að því í hvaða átt borgararnir aka???

Jæja þá eru prófin búin, sumarvinnurnar komnar í gang og fyrsta rall sumarsins búið! Hvað getur maður sagt annað en að lífið sé gott? Missti reyndar af annars ágætu ralli um helgina þar sem ég var vant við látin að hitta hið ýmsa fólk...jájá svoleiðis gerir maður víst líka!

Átti alveg ágætis helgi fyrir vestan, sem sýningardýr enda ekki á hverjum degi sem að hreinræktaðar blómarósir frá Hveragerði stíga fæti sínum niður í annars þessu líka fína þorpi, enda hélt fólkið vart vatni í þorpinu...!

Annars lítið að frétta, nema jú að ég er að flytja í eins og mánuð af heimili mínu hér á stúdentagörðum vegna fégræðgi...alltaf sama sagan með þessa íslendinga! Svo ég ætla að láta þetta gott heita í bili og klára að skúra út!

- Eva Rós - back in town!
19. maí 2008 klukkan 00:14
Eva Rós Sveinsdóttir
3 athugasemdir
10apríl

Blessađ voriđ...

Þrátt fyrir smá snjó svona í apríl mánuði get ég ekki annað sagt en að maður finni aðeins fyrir vorinu Svalur, konurnar eru farnar að viðra sængurfötin úti á snúru, fólk er ekki eins kappklætt og það var í vetur og jú daginn er farið að lengja Glottandi. Einnig má tengja vorkomuna öllum þeim mótorhjólaköppum sem sjást viðsvegar um landið, brunandi um...frjálsir og áhyggjulausir.

En það er ekki það eina, fjármál Íslendinga virðast vera í skítnum, vörubílstjórar loka aðal umferðaræðum Reykjavíkurborgar og mótmæla bensínverðinu , stýrivextirnir hækka bara og hækka og svona mætti áfram telja. Ég get nú ekki annað sagt en að ég standi með vörubílstjórunum, þetta er náttúrulega ekkert eðlilega hátt bensínverð...en hins vegar tel ég mikla hættu stafa að því að loka svona götum borgarinnar þegar litið er til sjúkraflutninga og annars.

Annars er fátt að frétta, ég eins og hinir háskólanemarnir, sit sveitt yfir verkefnum og skólabókum Óákveðinn og horfi löngunar augum út um gluggan...já blessuð sólin bætir og kætir, en hún er nú ekki alveg það sem nemarnir þrá að sjá þessa daganna Gráta.

But back to the books...

- Eva Rós - styttist í sumarfrí Svalur
10. apríl 2008 klukkan 13:11
Eva Rós Sveinsdóttir
Engin athugasemd
10mars

Karlmenn...

Konur hafa löngum setið og reynt að botna eitthvað í karlkyninu, og hefur það reynst þeim helst til erfitt. Kynin eru svo ólík að það er okkur konunum algjörlega óhugsandi að getað skilið karlanna út í gegn.

Ég tek sem dæmi "par" sem er búið að vera að hittast í nokkra mánuði, þegar að maðurinn þarf að vinna fram eftir eitt kvöldið og segir við hana að hann muni hafa samband á morgun. Þegar hún svo hringir daginn eftir svarar hann ekki, og ekki næstu daga heldur. Hún sér það í hendi sér að hann sé hættur, búinn að fá nóg en af hverju sagði hann ekki neitt. Gráta Manneskja sem er að nálgast þrítugt á að vera komin með þroskann í það að segja við hinn aðilann að hann sé kominn með nóg, sjái ekki framtíð í þessu, þurfi pásu eða hvað sem það nú er sem er að angra viðkomandi. Skömmustulegur Það er ekki eins og þegar að maður var yngri og byrjaði bara með nýjum aðila strax, enginn ástarsorg bara haldið áfram með lífið. Þetta er miklu miklu flóknara þegar maður er eldri, maður fer að geyma föt, snyrtidót og annað heima hjá hinum aðilanum til þess að þurfa ekki alltaf að vera með ferðatösku með sér og svona mætti áfram telja!

Ég get ekki sett mig inn í þetta, ég á svo bágt með því að trúa því að fólk geri svona. Öskrandi Hugsi eingöngu um sjálft sig og sé alveg sama um hinn aðilann, var einstaklingurinn bara að leika sér að hinum aðilanum í þennan tíma? Eða hvað er í gangi hjá svona fólki?

- Eva Rós - ...sem pirrar sig á sjálfselsku einstaklinga!
10. mars 2008 klukkan 09:56
Eva Rós Sveinsdóttir
5 athugasemdir
29febrúar

Já svona er Ísland í dag...

Það sem hæst ber á Íslandi í dag er umræða trukkabílstjóra um hvort að þeir eigi að festa farma sína á trukkanna eða ekki. Jááá athyglisverð umræða...en þetta er víst það allra heitasta. Nú sitja áhugamenn um trukka og aðrar vinnuvélar líkt og límdir við tölvurnar og lesa þessa áhugaverðu umræðu!

Jahh ef maður verður ekki allur uppörvaður við svona, hvað kemur manni þá í gírinn?! Annars vil ég bara láta alla vita að...

Art dekurstofa opnar í dag og verður opnunarhóf þar kl 16.30 í dag! Föt og skart frá versluninni Kiss, brunkumeðferðir og ljósatímar á góðu verði og margt fleira. Kíkjið við, Art dekurstofan er staðsett að Breiðumörk 2 Hveragerði.

- Eva Rós - á hlaupum á hlaupársdegi!
29. febrúar 2008 klukkan 10:42
Eva Rós Sveinsdóttir
2 athugasemdir
13febrúar

Dugnađur óóóó sei sei jáááá....

Jájá þrátt fyrir endalaust vesen í ráðhúsi Reykjavíkur, endalaust leiðindar veður sem getur nú ekki ákveðið það hvort að það vill hafa snjó eða rigningu...þannig að það er bara snjórigningakrapi....og já bara tuga milljarða tap á FL Group þá gengur nú lífið bara sinn vana gang þótt ótrúlegt megi virðast.

Dagurinn í dag var tekinn há alvarlega, og maður er bara búin að vera að lesa og glósa, og glósa og lesa...og svoooo já lesa aðeins meira. Ég var svo helvíti heppin að Ásta og Lísibet eru að fara í próf á morgun og ég er því búin að sitja við með þeim í dag og læra. Og svo komu tveir herramenn hérna í Unufellið til þess að elda fyrir okkur stelpurnar....agalega huggulegt allt! Glottandi Svo er bara að halda aðeins áfram og vera dugleg fyrri part dags, svo að við getum nú gert e-ð hrikalega skemmtilegt eftir prófið hennar Lísibetar á morgun.

Jæja ætla að læra aðeins meira áður en maturinn verður til! Vona að þið hafið það gott öll nær og fjær...afmæli á föstudaginn og þá hitti ég sko frænda minn úr útlandinu ekki amalegt það!

 - Eva Rós - afkastamikill stúderant!!!
13. febrúar 2008 klukkan 19:18
Eva Rós Sveinsdóttir
2 athugasemdir
30janúar

Tíminn bara flýgur...

Já janúarmánuður er nýbyrjaður en hann er nú samt af einhverjum ástæðum algjörlega á lokasprettinum. Janúar hefur kannski einkennst einna helst af roki og snjókomu, EM í handbolta, nýrri borgarstjórn og edrúmennsku Tommy Lee hér á landi svo fátt eitt sé nefnt.
Ég velti því einmitt fyrir mér um liðna helgi hvað stelpur hér á landi leggðu á sig fyrir útlitið. Það er ekki nóg með að þær þurfi helst að vera um 170 cm og 45 kíló...og inni í þeim kílóafjölda er talin ferðataskan þeirra. Nei í þessum líka skítakulda sem var um síðustu helgi mátti sjá stúlkur skjögrandi um miðbæinn í efnislitlum flíkum. Jaaahááá og ef maður gæti nú vorkennt þessum greyjum...nei vitið þið þær velja þetta alveg sjálfarFýldur

En út í allt annað, ég hef mikið verið að velta því fyrir mér vegna allra nýju paranna í kringum mig hversu lengi fólk er á byrjunarstigi og heldur sambandinu alveg út af fyrir sig á meðan að það áttar sig og hvenær fólk fer svo út í það að opinbera. Mér finnst bara allir einhvernveginn fara svo hratt í allt, byrja saman, kaupa hús, trúlofa sig, eignast börn og bara allt saman og svo situr fólk eins og ég eftir og klórar sér í hausnum. Jahh segið mér hversu lengi það er eðlilegt að vera í lausu lofti og á byrjunarstigi?

- Eva Rós - veltir heiminum fyrir sér.
30. janúar 2008 klukkan 20:22
Eva Rós Sveinsdóttir
4 athugasemdir
23janúar

EM og ný borgarstjórn

Ég er hætt að skilja hvað um er að vera við tjörnina í Reykjavík, ég er farin að halda að e-ð sé að stólnum sem að borgarstjórinn á að sitja í. Þeir ætla ekki að hafa nema svona eins og 3 borgarstjóra á launum á tímabilinu EF að ekkert breytist. Ég tel náttúrulega alveg óhæft að hafa íhaldið við völd, enda ekki frægir fyrir neitt annað en valdabaráttu og stéttarsnobb. En það er náttúrulega bara mín skoðun.

Annars hefur kannski lítið farið fyrir borgarstjórnarbaslinu vegna þess að allur landinn er límdur við sjónvarpsskjáinn þar sem að íslenska landsliðið í handbolta keppir á EM. Glæsilegur leikur var að klárast þar sem að Snorri Steinn og Hreiðar áttu stórleik, auk þess sem að aðrir aðilar í liðinu voru að standa sig eins og hetjur. Það sést að landinn stendur með sínum mönnum í blíðu og stríðu þar sem að um 12.000 manns hafa skráð sig sem stuðningsmenn. Fyrir utan alla hina!
Ég persónulega á erfitt með mig, ég garga og öskra hérna ein heima Skömmustulegur hoppa upp úr sófanum og læt öllum illum látum, og stíg svo stíðsdans þegar að okkar menn standa sig! Hrikalega gaman þegar að vel gengur og við getum verið stollt af okkar mönnum hvernig sem að leikurinn á morgun fer.

En back to busniess, skólabækurnar bíða!

- Eva Rós - Stoltur íslendingur sem að hefur eignað sér gullputtann!
23. janúar 2008 klukkan 20:50
Eva Rós Sveinsdóttir
Engin athugasemd
14janúar

Litiđ yfir farinn veg, og ný stefna tekinn!!!

Árið 2007 þroskaði okkur, gaf okkur tíma með þeim sem okkur þykir vænt um. Kvöddum ástvini með söknuði og buðum nýja einstaklinga velkomna í heiminn. Þetta er gangur lífsins, og það eina sem við getum gert er að fagna þeim góða tíma sem við eigum hér á jörðu.

Nýtt ár er nú gengið í garð og það eina sem við vitum er það að nýtt fólk á eftir að koma inn í líf okkar og við eigum ábyggilega eftir að þurfa að kveðja einhverja sem þurfa að kveðja sitt jarðneska líf. Njótum tímans, njótum fólksins og njótum þess að vera til!

Vona að árið leggist jafn vel í ykkur og mig, kannski er ég bara rosalega jákvæð núna...en ég vona svo sannalega að árið verði jafn gott og ég vona að það verði. Það byrjar að minnsta kosti vel!

Lífið er gjöf, njótið hennar...og bara svo að þið vitið það þá er hamingjan hugarástand sem byrjar með brosi!

- Eva Rós - ...á gatnamótum!
14. janúar 2008 klukkan 19:18
Eva Rós Sveinsdóttir
5 athugasemdir
20desember

Jólastúss

Það er kominn tími á það að blogga og gott betur en það! Það hefur mikið verið að gera undanfarna 2 mánuði og er ekk hægt að segja annað en að maður sé bara fegin að maður sé kominn í jólafrí! Svalur Síðasta prófið var í morgun, og svo var bara kæruleysi og fínheit það sem eftir var dags...enda Soffía mín í fríi og ekki annað hægt en að slæpast bara og hafa það gott!

Það sem drifið hefur á daga mína er svo sem ekki margt (sem ekki tengist skóla eða vinnu), en þó komst ég að því að karlmenn eiga bátt með að taka djóki, segja ekki meiningu sína, halda að maður lesi hugsanir og jáááá viti menn að allt sem að maður telur að þeir segi í kaldhæðni er greinilega allt bara svona líka mikil alvara! Já það er nú alveg greinilegt að ég hef ekki fæðst með þau gen að getað skilið karlmenn, en þeir geta engu að síður rifið út manni hjartað eins og ekkert sé sjálfsagðra.

Ég er búin að öllu fyrir jólin, enda bara vinna næstu daga og svo heim til múttu í sveitina. Það er ekki annað hægt að segja en að jólin verði aðeins öðruvísi en maður er vanur, en þetta er gangur lífsins. Við kveikjum bara á kertum, og hugsum til hans, enda verður hann pabbi minn hjá okkur að sulla í rauðvíni og gæða sér á hamborgarahrygg með öllu tilheyrandi.
Ég vona að öllum gangi allt í haginn, og séu ekki að stressa sig um of. Þetta er rosalega góður tími, jólin, ef bara maður stoppar um stund og nýtur hans með ástvinum sínum. Megið þið eiga gleðiríka jólahátíð.

- Eva Rós - er með Grinch alveg á hreinu og hans christmas-criminal-behavior!
20. desember 2007 klukkan 23:35
Eva Rós Sveinsdóttir
2 athugasemdir
24október

Háskólamćrin framhald...

Háskólamærin hélt sig til hlés um sinn, hún fann fyrir pressu frá samnemendum sínum. Auk þess varð hún alltaf eins og kjáni þegar að lögfræðineminn kom nálægt henni með sín sjúklega flottu bláu augu! Hún fann roðann hlaupa fram í kinnarnar Skömmustulegur og talandinn varð aldrei slíku vant lítill sem enginn.

Eftir þó nokkrar bið mætti hún þó hress og kát í skólann og ákvað að láta til skara skríða, hún valdi sér sæti rétt hjá honum, hafði eitt sæti á milli þeirra þar sem að nánast enginn var mættur. Hún brosti og bauð góðann dag, hann horfði á hana og henni fannst eins og hnéin ætluðu að gefa sig og hún myndi brátt hrinja niður eins og keila (hann gæti þá kannski öskrað fella)! Hann horfði um stund, tók svo headphones-ið úr eyrunum Skömmustulegur og stundi upp HA-i. Hún glotti og bauð aftur góðann daginn, hann bauð góðann daginn til baka og spurði svo sagðiru ekki annars góðann daginn? Jújú sagði hún og beið eftir að hann segði e-ð meira, en þögnin varð bara sífellt rafmagnaðri. Á endanum ákvað hún til þess að rjúfa þögnina að spurja hann um námið og hvernig honum gengi svona í afbrotafræðinni og bara náminu almennt, þau töluðu um stund en svo kom vandræðanleikinn aftur upp! Til allrar hamingju sá háskólamærin vinkonu sína koma inn í kennslustofuna, henni hafði verið bjargað um sinn...frá þeirri pínlegu kvöð að brjóta ísinn og kynnast honum!

Nú er svo bara stóra spurningin hvort að hún ætti að reyna e-ð meira eða láta bara kjurt liggja og láta það nægja að verða eins og leir þegar að hann kemur nálægt henni!
24. október 2007 klukkan 22:51
Eva Rós Sveinsdóttir
7 athugasemdir

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eva Rós Sveinsdóttir
  • Stađur: Reykjavík/Hveragerđi
  • Atvinna: Háskólanemi
  • Hjúskaparstađa: Í sam-fara-bandi

Sumarfrí í HÍ